|
|
19.08.2007 02:37:44 / Harpaa ;*
Halló,, já það að blogga er ekki mitt fag ,, sorry (:
en jæjaa ,, um versló ætlaði ég að fara á ULM á höfn en svo var mér boðið að vera á þingeyrum og ég valdi það & sé sko eekki eftir því (a) ..og á þingeyrum voru fjórar bandarískar stelpur og ein þýsk og tvær konur í viku og ég eín og helga fengum að vera þarna hjá þeim í gamlabænum ,, vá þetta var svo shitt gaman,, fórum á hverjum degi í langan reiðtúr ,útí sand , yfir hópið og yfir húnavatnið og fleira , og svo máluðum við geðveikt flottta mynd í skemmuna oog gerðu ehv ullardæmi & auðvitað var farið í pottin á hverjuu kvöldi..  
Svo er ég líka búin að vera ehv að keppa .. Keppti á glæsi á húnaflóamótinu oog komt inní úrlit :' og endaði fimmta Svo á neistamótinu var ég með goða og sólbrúnu,, gekk ekki vel á goða en var í þriðja á sólbrúnu (sem btw átti að fara í sláturhúsið í vetur því hún var svo klikk ) ..
Svo núna á fimmtudaginn síðasta komst ég looooksins á selfoss og hér er ég búin að brasa hluti eins og að fara á simpsons movie,, sem er sko fyndnast í heimi ,,svo fórum við á menningarnótt í dag eða áðan og það var bara stuð 
En ætla að fara að sofa í hausinn minn ;* góðanótt 
;* Harpa Birgisdóttir
»
13.07.2007 23:35:26 / Harpaa ;*
Jæjaa mér finnst vera kominn ágætur tími á blogg 
en bara lítið

Júní ,, mm júní hjá mér öö ,, elín er
búin að vera mikið hjá okkur og við erum búnar að brasa helling
eins og fara mikið á hestbak ,, smíða hálfan sólpall,, þrífa
hesthúsið&hlöðuna,, bleyta fjárhúsin,, og
bara ehv .. Um síðustu helgi fórum við til reykjavíkur kíktum
líka aðeins í heimsókn til sigguogsigga í sumarbústaðinn ;*...
kristín þurfti að versla ehv áður en hún fór á norrænu og við
þurftum að sækja svanhildi því hún var að koma frá DK ég græddi
ehv smá á þeirri ferð fékk nýjar reiðbuxur (það var sko kominn tími
á hinar ,, alltof stuttar og saumurinn á rassinum farin ),og svo
ehv meira .. Oog í gær og í fyrra dag var
héraðsmótið vá það var gaman að hitta stelpurnar , ekkert búin að
hitta þær í allt sumar :/,, en gekk bara nokkuð vel ,, endaði með
sjö verðlaunapeninga og einn bikar og geislar unnu auðvitað
stigabikarinn ,, sjöunda árið í röð eða ehv (Y)

Heyrið ,, þetta verður að duga í bili ,, ég varð bara að blogga
svo það yrði ekki eins erfitt að blogga næst en annars bara
séykkur .. hey hver verður á húnavöku um helgina ?
HarpaaBirgisdóttir
farvel

»
08.06.2007 23:21:58 / Harpaa ;*
Hellow ,, :]
well,, hvað segi þið ?? hey mér finnst fáránlegt það fara
kannski 14 inná síðuna en enginn commentar ;O
,, þið eruð léleg ! 
hmm,,þessa dagana er ég eigilega ekki búin að gera neitt |a|
,, 
við erum komin með tvo heimalinga (N) ME ME ME ME ;S ,,
hvern langar í lömb ? ég skal gefa ykkur
ég fór á sólbrúnu í gær, ég hef ekki farið á hana í langan tíma og
hún hrekti ekkert og stoppaði aldrei ,, hún var
bara nokkuð góð ;O gottmál*
ég fór svo á fyrstu frjálsíþróttaæfinguna á mánudaginn , :/ við
stelpurnar fórum í kúlu &svo var farið í fótbolta ,, ágætt
svossem .. Svo fór ég líka á æfingu á miðvikudaginn á blönduósi,,
það var stuð ,, hehh vorum bara tvo ég og simmi,, fórum í langstökk
og spjót (btw,, hann kasstaði meira en helmingilengra en ég
:‘),,svo í gær fór ég á lúðrasveitaæfingu ,, úff er alveg að gefast
upp á þessum lúðrasveitaæfingum |-) !
hmm.. Í dag vöknuðum við snemma og fórum út að gefa
,, ME ME ME ( váá hvað ég er komin með
mikið ógeð af þessu hljóði ME ) rákum svo nokkrar kindur
upp í brekkur, settum út og eitthvað Ég var dugleg og mokaði
hesthúsið og sótti jónas&mósa. Höddi kom svo með glæsi
,, og járnaði jónas&mósa . Svo fórum við í
reiðtúr og ég fór á glæsi og notaði nýja fína hnakkinn minn sem ég
fékk í fermingagjöf í fyrsta sinn ,, glæsir er bestur og hnakkurinn
líka 
Veivei Helga er komin og á morgunn getum við farið á uppáhalds
hestana okkar ,, jónas &mósa 
een ,, nú skulu þið vera ekki léleg og commenta á þetta
yndisfríða blogg :**
Ég bið að heilsa ykkur þarna 
loveya !
Harpa hestastelpa,, :]
 
 heyrumst
»
03.06.2007 23:12:36 / Harpaa ;*
Halló kærumínir (:

wellwell ,,margt búið að gerast síðan seinast .. nenni ekki að
segja frá því , nema lokadeginum /a/
(:

Lokadagurinn:: komum í skólan klukkan 10 ,, byrjuðum að fara inní
stofu,, og við fengum bolina úr reykingaverkefninu & skiluðum
vorverkefninu (jebb ég hafði það af) . Næst fórum við út í
götubolta og það vantaði stelpu í yngri liðin þannig ég fékk að
vera í rauðaliðinu ,, og við unnum þar ,, ég , rakel og maría
svo í eldri þá voru ég kata og hulda saman í liði ,, og við unnum
þar líka Svo fórum við í fatasund ,, engar gallabuxur í
þetta skiptið en buxurnar sem ég var í voru ekkert betri þufti að
bynda teygjuna gg fast svo þær læku ekki niður :‘D ahahaha ,, ég
sökka í koddaslag ,, vann ekki einn leik (a) eftir sundið var grill
og leikir og ahaha og ahaha og kennararnir unnu 10.bekk í
körfubolta ,, ahahaha ludar.. hey já svo fékk ég
verðlaun í skólabílnum fyrir að vera búin að vera stilltust í vetur
:‘D ahahaa (y)

Vííí ,, sauðburðurinn næstum búinn (y),, samt örugglega 14
gemlingar eftir en bara 6 rollur veivei komin 3 folöld ,, 1 meri
og 2 hestar :* 

Svo síðustu daga er ég bara búin að vera hérna í sauðburði ,, fara
á skólaslit,, fara á hestbak , trampólínast og bara eitthvað
stúss ,, !

Nenni ekki meira í bili 
commenta ;*?

Harpaa :]
  
»
25.05.2007 15:01:10 / Harpaa ;*
Hææhæ ;*
Sauðburður,,sauðburður,,sauðburður..
Ætli maður
bloggi ekki úr því að maður hefur tíma til þess
5auðburðurinn
gengur vel, það eru örugglega komin 520 lömb og 2/3 búnar að bera
,, allveg að verða búið (y). Ojj hvað það
er ógeðslegt veður, maður kemst ekki í neinn sumarfíling
Engin sól & engin blóm…
Vorverkefnismappan
er slæm (a) ,, hvernig haldi þið að það gangi hjá mér að
skrifa dagbók á klukkutíma fresti ? ,, og lita bíldótta rollu ? ,,
og vita þetta og hitt :’D ahaha ,, þetta gengur ekki vel ,, pabbi
sem er lærður bóndi veit ekki einu sinni hvað bíldótt
er(hvaðvarhannaðgeraíbændaskóla), ég held samt að hann vilji ekki
vita hvernig það er ,, hann vill bara
hvítarrollur&&hvítlömb !! En þessi elskulega mappa verður
kláruð fyrir rest
Lokadagurinn
á þriðjudaginn,, haa eigum við að reyna gallabuxurnar aftur í
sundinu ?? Skólaslitin
svo á fimmtudaginn,, & þá er bara komið sumarfrí
Nóg í bili
.. þarf að líta á þessa rollurassa mína ,,
Commentaa
;*
Harpaa


»
22.05.2007 04:04:07 / Harpaa ;*
Hallóó 
Hmm
eitt stykki blogg svona úr því ekkert er að gera
Ég á
að vera í fjárhúsunum frá þrjú til fimm í nótt,, en það er nú bara
ekkert að gera þar 1 gemlingur að bera
Þessa dagana geri ég ekkert nema að vera í sauðburði
,.. Dagarnir eru allir svipaðir og þar sem ég þarf að skrifa í
dagbók á klukkutíma fresti fyrir skólann þá verður þetta sko ekkert
dagablogg  Sirka helmingurinn er borinn [y] ,, báru næstum allar á 2 dögum
:’) En samt er ég bara búin að fá eitt lamb ,, helv** ,, hin koma
Það eru líka komnir kettlingar ,, þrjú stykki :* þeir eru
reyndar allir svoldið ljótir ..hvítur, gulbröndóttur og
grásvarflekkubröndóttur or sum ,, samt eru kettlingar alltaf
kettlingar  Jeijj ,, enginn skóli fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku,,
&& þá verður lokadagurinn hlakka svo til :]] og svo
bara sumaarfrííí<3Þetta verður ekki lengra ,, comment
;*
--Harpaa

Sem elskar sofandi kindur 
 
Get ekki beðið eftir folöldunum
:]]
»
13.05.2007 22:08:24 / Harpaa ;*
Hæhæ
;]
Ætla að skjella inn einu bloggi

VORFERÐALAGIÐ var SNILD !! komum í skólann á venjulegum tíma og
fórum svo uppí rútu ! Byrjuðum að skoða Víðimýrakirkju ,, svo fórum
við í rafting jökulsá-vestari, byrjuðum á því að hlusta á einhverja
klukkutíma ræðu um það hvernig á að haga sér ,, fengum búninga og
byrjuðum að troða okkur í það sem gekk ekki sérlega vel :’) ,
keyrðum svo gg lengi að ánni , þar var okkur sagt frá fleiri reglum
og eitthvað kjaftæði ,, loksins fórum við útí ánna ,
reyndar var þetta ekki eins gaman og ég bjóst
við :/ ,, samt stuð sko ,, best þegar við máttum fara útúr
bátnum og orri var að hífa okkur aftur uppí ,, það datt nú
bara einn útbyrðist og það var ingibjörg :’D gregið ,, HHAHA.. !
Þegar við vorum komin á áfangastað var öllum illa kalt og fastir í
göllunum sínum ,, þegar við komum svo allveg til
baka fengum við kakó og sáum myndband úr jökulsá-austari , ég ætla
pottþétt að fara í hana þegar ég verð orðin 18 Næst borðuðum við
nesti og keyrðum svo útá hegranes til að fara í
klettasig ,, ! VÁA ,. mér fannst það vera BEST
,, ógeðslega erfitt að fara fram af brúninni í fyrstu ferðinni en
um leið og maður var kominn af stað var þetta geggjað ofkors fór
ég þrjár ferðir og hefði viljað fara fleiri !! þetta er geggjað ,,
*svanhildur við förum í svona þegar þú kemur heim* Eftir
klettasigið fórum við svo í sund á sauðárkróki .. Borðuðum svo á
mælifelli && horfðum á júróvísion ,, “#$&%$#
austur-evrópa, !! (A) ,, Á heimleiðinni var svo gg mikið spennufall
eftir daginn og flestir ógeðslega þreyttir Þegar ég kom heim fór
ég út og kíkti á fyrstu lömbin ,, æjji ég var búin að gleyma hvað
lömb eru mikið æði ;**
Svo á
föstudaginn fengum við vorverkefnin og fórum í ferðalag í
vatnsdalnum og skoðuðum nýju fjárhúsin á hofi og hjallalandi ,, svo
var skólinn búinn klukkan 1 og ég fór í afmæli til hafdísar
Ætla að fara
að sofa ,, þarf víst að vakna klukkan 7 í fyrramálið ,, stelpan ein
með allt búið þangað til klukkan hálf 4 á morgun
,, endilega commenta
(A)
Harpa Birgis
;*


axel&jói fóru fyrstir

brynjar að siga ,, duglegur *

ég komin niður ,,
---------------------------------------------------

ég&fyrsta lambið ;**
»
04.05.2007 23:19:55 / Harpaa ;*
Hææhææ
Jáá ,, ætti maður að byrja einu sinni enn ?? ,, það verður allavena
einhverntíman í sauðburðinum þegar maður er að vaka og hefur ekkert
að gera að maður nenni kannski að blogga
Bara þrír
skóladagar eftir ,, stærðfræðipróf, náttúrufræði og
samfélagsfræði próf eftir ,, og eftir fjóra daga er skólaferðalag
,, og við förum í rafting í skagafjörðin og í klettasig ,, ,,ég
er svo spent , veit samt ekki hvort ég þori í þetta klettasig ,, en
ég ætla samt vil ekki láta kalla mig kjúkling það sem eftir er
af ævinni !!
EEn í dag
var skóli ,, enskupróf , gekk samt ágætlega sko léttara en ég bjóst
við ;] svo eftir skóla var afmæli hjá kötu oog vá það var snild ,,
sérstaklega í fótboltanum :’DD við skafti erum svo miklir
fótboltamenn við komumst örugglega í heimsliðið eftir nokkur ár !!
Helga kom líka ídag 
Ég held að
það sé að koma vor búið að vera geðveikt gott veður allavena á
laugardaginn, sunnudaginn og mánudaginn
en nenni
ekki meira í bili :]-Harpaa
Geðveikt þetta !skólaferðaalag
í fyrra :') (sorry)
»
20.03.2007 18:15:19 / Harpaa ;*
Sippoghojj
w
;;Eitt stki blogg.. Í dag er ég ofsaofsa kát
;]
w
Helgin ;; Á föstudaginn var ég nú ekki svo illa veik
en var heima allan daginn og passaði mig ofsa vel ,, en svo um
kvöldið fór ég reyndar á æfingu í hestunum , og það gekk nú bara
nokkuð vel svo eftir æfinguna fórum við yfir í hesthúsið hjá
Tryggva og böðuðum Goða :’) það gekk furðuvel ,, hann var ekki
allveg að meika þetta fyrst en svo var hann nokkuð kátur með þetta
Svo á laugardagsmorguninn vaknaði ég snemma og fór að horfa
á videó og svo kom Helga og við vorum bara eitthvað að brasa í
tölvunni ,, og við fórum líka í pílu sem að endaði ekki vel því við
brutum tvær pílur og spjaldið hætti að virka :’) ææ ,, . Svo vorum
við bara að horfa á myndir og tala & eitthvað Svo um kvöldið
var Stórsýningin && það var bara flott
sko fullt af flottum hrossum sem gátu gert allan fjandan ,, og
svo var auvitað atriðið okkar mergjað flott og allt gekk upp Svo
þegar þetta var allveg að verða búið þá fékk ég geðveikt mikið
“kvef” í augnholurnar og ég var allveg að brjálast þarna
ekki stuð :/ svo var þetta búið og við bara strax heim og kristín
kom líka heim í sveit :] og ég bara beint að sofa .. Söndagsen:
Vaknaði og fór að lesa í náttúrufræði (y) jess , .. Svo kom
Helga og við fórum aað gera ekki neitt bara ,, hangsa og spá í hvað
við ættum að gera en svo fórum við að horfa á video og
vorum að því allan daginn .. svo fór helga og ég fór að læra smá og
borða .. (: um kvöldið kom Helga og þá var ég aftur komin með
eitthvað ógeðis kvef í ennisholurnar svo fór helga og ég fór að
horfa á sjónvarpið og svo bara að sofa ..! Mánudagur} vaknaði seint
og gat ekki opnað augun það var svo mikið ógeð í þeim ekki
þægilegt !! í hádeginu gerði pabbi eitthvað
piparmintuvatn og lét mig anda að mér vá hvað það var
ógeðslegt fyrst ,, geðveikt fyndið ég varmeð
svona handklæði yfir hausnum og svo táraðist maður helling og varð
allur sveitur en gessvatt þetta virkaði mjög vel :’) svo eyddi
ég deginum í að lesa einhverja bók fyrir ensku og gera bókaskýrslu
,, s.s. gærdagurinn var mjöög boring hjá
mér DNO um kvöldið andaði ég aftur þessu piparmintuvatni að mér og
fór svo að sofa 
Ídag, fór ég í skólann ;] && ég var greinilega búin að
gleyma hvernig það er ,, íþróttir horfa á ,, svo reyndar
kom einhver karl með tónlist fyrir alla og það var gg flott hann
var með fullt af öðruvísi hljóðfærum og bara flinkur en svo var
bara aftur þetta sama ,, búa til bók ,, vera inni í löngu og reyna
að spila við simma (gekk ekki vel því hann var frekar sofandi) ..
svo var fermingafræðsla og það voru alltaf sömu
rólegheitin ,, maður gæti sofnaði og enginn myndi taka eftir því
,, matur, og svo var enska ,, og svo var stærðfræðipróf
ekkert of góður dagur !!
well ,, mikið að gera hjá mér núna það styttist í útlandið og í
ferminguna &svo er afmælið mitt þarna á milli ,, úff
hvað ég er orðin spent ;O
"en allavena dugar " Nú skuli þið láta vita að
þið séuð hérna og commenta 
-Harpasemhefurmikiðaðgera,;*
w

»
15.03.2007 12:03:15 / Harpaa ;*
Hæhæ
;*
okey ,, ætla að byrja aftur með þessa
síðu samt hef ég eigilega nákvæmlega engan tíma til þess að
blogga 
Mikið mikið
búið að gerast hjá mér !
Um síðustu helgi var Bingóið á Húnavöllum vann ekkert þar og
þurfti svo að fara geggjað snemma heim af diskóinu “/
Svo á laugardeginum vaknaði
maður þvílíkt snemma og við fórum á blönduós að kemba&þrífa
Goða  Fórum svo á svínavatn og ég var bara að hafa hann til í
rólegheitum fór svo útá æfingabrautina og var bara að dúlla mér þar
og svo var ég að fara á bak oog hann bara *rjúúng* rauk #”$%$#
, jónárni ætlaði að gera heiðarlega tilraun í að
stoppa mig en hætti svo við þega ég nálgaðist en hann endaði nú á
því að stoppa efst á túninu við girðingu svo við snérum við og
reyndum að fara rólega til baka :] Goði var orðinn þvílíkt æstur og
tens ! en ég ákvað samt að fara í brautina og
það gekk ekki vel hann hoppaði hægatöltið og hraðabreytingarnar og
rauk yfirferðina “/  gengur betur næst .. en
svo vorum við þarna bara að horfa allan daginn frá 10-6  sáum
líka fullt af flottum hestum .. en svo um kvöldið fór ég á
árshátíðina á Blönduósi og það var stuð
Fór í skólann á mánudaginn , svoldið skrýtið þegar vantar allan
9.bekk *-) svo eftir skóla fór ég niður á blönduós og fór í
hesthúsið og svo í höllina að hitta kareni því við vorum að fara að
æfa eitthvað atriði en Tryggvi var 30 min of seinn þannig viið
(KAREN) bjuggum til mjöög frumlegt atriði  en svo kom Tryggvi
og við æfðum þetta atriði og svo strax eftir það var æfing með
krökkunum og ég fór á þessa !”$## meri sem er búin að fara í gegnum
hólaskóla en getur samt varla tölt !! Svo er ég bara búin að vera
veik í 3 daga
En ætla að gera eitthvað sniðugt eins
og að horfa á sjónvarpið 
Commenta
?
VeikaHarpakáta 
flottamynd (:
»
19.02.2007 22:00:40 / Harpaa ;*
»
05.01.2007 22:15:33 / Harpaa ;*
Hææhæj :]]
Kata komin í skólann 
ónei þessi #$%&($R#]] skóli er aftur
byrjaður reyndar ekki svo slæmt ,, því við þurftum
varla að gera neitt 
Da-Day ;; Vaknaði klukkan hálf níu og fór í
sturtu og hafði mig til fyrir skólann .. Skólinn byrjaði ekki
fyrr enn klukkan tíu Í fyrsta tíma vorum við að sprengja
flugelda ,, stuð sko ,, haha svo bað sigga mig um að sprengja
einhverja svona
stóra innibombu og ég bara jájá og svo sprengdi ég hana það kom geðveikt
mikið rusl ekkert venjulegt !! en svo héldum við áfram, kom þá ekki
skólastjórinn til okkar bara svo viti þið að þegar þið eruð búnar
að skjóta fari þið í að týna rusl !! auðvitað trúðum við
honum og byrjuðum að týna ruslið en svo fengum við að vita það að hann
var að djóka  svoldið vandræðalegt þegar við
vorum búin að sprengja voru komnar löngu og við stelpurnar
fórum í rólurnar og vorum bra að spjalla eftir löngu fórum
við að taka niður jólaskrautið og svo fór ég í spilatíma ,, það var gaman
Svo var
hádegismatur og það var skyr og h0llustumatur :’) .. Eftir
hádegi gerðum við eina dönskuhlustun og horfðum á einhverja
Vesúvíusmynd sem var örugglega gerð árið -1 eða eikka
Eftir skóla fór ég í frjálsar .,. Gummi er hættur þannig
Haukur var með þessa æfingu ,, það var fínt fórum í fótbolta
og grindarhlaup og aftur fótbolta ,, við hulda vorum sko
allveg að meika þetta ** Þegar ég kom heim fór ég út
að gefaa og svo inn að gera eitthvað ,, horfði á TV og msn
;**
Endalok , sýjababý ;*
Harpaa ;]]
“svo”

»
01.01.2007 19:27:29 / Harpaa ;*
Gleðilegtnýttár!
veiveivei,, 1. dagurinn á árinu
.. Ehemmh ætla að blogga fallegra blogg heldur enn hitt

2006 baraa búið .. það leið gg hratt ,, það gerðist líka
margt skemmtilegt
eins og ferðin með lúðrasveitinni á ak ,, haha það var bara snild
, sumarið ,, geggjað stuð ! Fór mikið á hestbak og stúss
unglingalandsmótið á laugum það var GAMAN , vatnaskógur ,,
óggislega gaman langar að fara þangað aftur svo byrjaði skólin
,, veit ekki hve skemmtilegt það var og svo
RÉTTIRNAR 
það var snild hlakka svo til í næstu réttum , má ekki gleyma
minni fyrstu útlandaferð en það varlíka bara geggjað og svo árshátíðin
það var líka geggjað stuð ,, og svo gerðist margt margt meira
sem ég nenni ekki að telja upp s.s. árið 2006 var mjög “geggjað”
:’D
,,
Gamlársdagur ;; Vaknaði og var að reyna að taka til en það gekk
ekkert of vel .. Svo borðaði ég og fór svo niðureftir að tala
við trippin ,, og ég hoppaði á bak á Gátu og henni var allveg sama
 .. svo kom Helga og við fórum í pílukast við ármann og
kristínu hehe,, gaman Svo vorum við að ryksuga og eitthvað .,!
svo þurfti Helga að fara heim og ég fór í bað !! Svo komu
afi og anna og við borðuðum !
eftir matinn vorum við í pílu ég ármann og kristínu og svo var
komið að áramótaskaupinu sem allir hlökkuðu til að sjá en nei nei
þá var það svona ÓGEÐSLEGA ÖMURELGT !! eftir skaupið fórum við
ármann að spila við afa til svona half tólf en þá fórum við að gera
okkur klár fyrir að skjóta upp við vorum með slatta af flugeldum
,, við skutum HEELLING upp ,, okkar flugeldar, ármanns og skúla og
það var slatta mikið og geggjað flott … þegar allar terturnar og
stóru ragetturnar voru búnar fóru allir inn nema við Helga
hehe,, sprengdum helling af froskum (var nú reyndar komin með ógeð
af þeim) , tæum og krínverjum og eitthvað svona smá sprengjur
gg* stuð ! =) Svo um nóttina spiluðum við og horfðum á DVD til
svona fimm ,,! Við sem ætluðum svoo að setja vökumet og fara bara
ekkert að sofa ! tókst ekki allveg ..
Nýársdagur ;; Vöknuðum eitthvað um hálf þrjú held ég
.* og fórum upp
á gamlabæjatún og ætlum að renna en það heppnaðist nú ekki
vel .. svo þurfti Helga að fara heim á selfoss og ég fór
bara heim  0g svo er ég bara búin að vera spila
á flautuna og horfa á eina mynd í dag ..! og blogga 
Svanhildur á afmæli í dag ;* til hamingju með það stóra systa

Plís ,, commentið það commentaði
enginn á síðasta blogg þannig !”#$%&#”$ (a)
En allavena Gleðilegtnýttár ;**
Harpaasemhlakkartil ;O


»
31.12.2006 00:30:20 / Harpaa ;*
Hmm ,, hef ekkert að gera
þannig ég ætla að blogga …
Á fimmtudaginn fórum ég , Kristín og mamma í heimsókn til
siggu&sigga (fólkið sem Kristín er hjá úti ) ,, en þau eru á
íslandi núna þannig við fórum í heimsókn þangað og það tók allan
daginn .. samt geggjað gamna að hitta þau og krakkana ..Svo á
Föstudaginn vaknaði klukkan 10 og fór út að girða með pabba ,, og
svo fór ég bara upp í gamlabæ og við Helga vorum að fríka útí
Eyetoy svo um tvö fór ég heim að hafa mig til fyrir æfingu
.. svo klukkan þrjú fór ég á æfingu og hehh það voru nú bara átta
,, samt geggjuð æfing ,, byrjuðum í fótbolta og já veistu ég
hefði átt að hreifa mig eitthvað í jólafríinu ég var eins og
tómatur ,, en allavena eftir fótboltan fórum við í einhverja
kúluboltaleik ,, SHIt hvað það var erfitt ! svo fórum við í
hástökk og svo aftur í fótbolta .. Þegar ég kom heim fór ég að
gefa með pabba , .. Svo um kvöldið kom Helga og við vorum að setja
lög á ipodinn og bara fíflat og svo gistum við og vorum bara
að spjalla .. Og svo í ,orgun vorum við vaktar og þurftum að
þrífa kirkjuna .. svo fór hún og ég fór í sturtu og svo á
jólaball á húnavöllum og það var eigilega bara drep leiðileg !!
Kom heim og fór svo uppí gamæabæ í Eyetoy og haha það var snild ég
er allgjör DJ tíhí ,, svo heim að borða og svo kom Helga og við
og pabbi og Kristín að setja upp píluspjaldið og svo fórum við í
nokkra leiki gg stuð .. og svo fór Helga og ég fór að blogga
!!
Þið verðið að afsaka hvað þetta er hrillilega niðurdrepandi og
ljótt blogg (a) 
Commenta þeir sem lásu .
- Harpa ;]
»
27.12.2006 23:00:01 / Harpaa ;*
Hæhæjj

syngjandi hér syngjandi þar syngjandi geng ég allstaðar !
einu sinni átt’ ég kú ,, bababú 
Jólin búin ,,, fékk fullt af geggjuðum jólagjöfum eins og t.d.
ipod nano , náttföt, náttbuxur, armband, töskur, húfur,
peysurm geisladiska, pening, dvd disk, ilmvötn, sokka,
eyrnalokka ofl. 
Takk fyrir mig (K)
Helga kom í gær
veivei,, geggjað að hitta hana 
En nenni ómögulega að vera að blogga varð bara að láta vita að ég hefði
ekki týnst þið fáið blogg kannski seinna {a* 
- Harpastoltiletingi
Það er rosalega
dimmt úti passið
ykkur
»
Síður: 1 2
|
|